Skip to main content

Persónuverndaryfirlýsing – Nýja Avalon miðstöðin

Með persónuverndaryfirlýsingu þessari er greint frá því hvernig Nýja Avalon miðstöðin kt. 621087-1429, Hverfisgötu 105, 101 Reykjavík stendur að vinnslu, s.s. söfnun, skráningu og vistun persónu-greinanlegra upplýsinga um einstaklinga. Yfirlýsingin fjallar einkum um vinnslu persónuupplýsinga um einstaklinga sem heimsækja vefsíðu Nýju Avalon miðstöðvarinnar www.nyjaavalon.is.

Nýja Avalon miðstöðin vinnur persónuupplýsingar í samræmi við gildandi persónuverndarlöggjöf á Íslandi á hverjum tíma.

Persónuvernd er Nýju Avalon miðstöðinni mikilvæg

Öflug persónuvernd er Nýju Avalon miðstöðinni kappsmál og leggjum við áherslu á að virða réttindi einstaklinga og að öll meðferð persónuupplýsinga sé ávallt í samræmi við gildandi regluverk og bestu venjur á hverjum tíma.

Hvaða persónuupplýsingum safnar Nýja Avalon miðstöðin um þig og hver er tilgangurinn með söfnuninni?

Nýja Avalon miðstöðin leggur áherslu á að vinna einungis þær persónuupplýsingar sem nauðsynlegar eru í samræmi við þann tilgang sem liggur að baki söfnun upplýsinganna. Nýja Avalon miðstöðin vinnur persónuupplýsingar ekki frekar í óskyldum tilgangi nema einstaklingi sé tilkynnt um slíkt og þá heimild sem vinnslan byggist á.

Nýja Avalon miðstöðin safnar eftirfarandi persónuupplýsingum ef fyrirspurn er send á Nýju Avalon:

  • Auðkennis- og samskiptaupplýsingum: Nafn, netfang og símanúmer.

Nýja Avalon miðstöðin vinnur persónuupplýsingar einkum í þeim tilgangi að:

  • Bregðast við fyrirspurnum.

Yfirferð og endurskoðun persónuverndaryfirlýsingar Nýju Avalon miðstöðvarinnar

Persónuverndaryfirlýsing Nýju Avalon miðstöðvarinnar er endurskoðuð reglulega og uppfærð þegar þess þarf. Síðasta uppfærsla var 6. október 2021.

Hafðu samband

Ef þú hefur frekari fyrirspurn hafðu samband á info@nyjaavalon.is