Skip to main content
All Posts By

premisadmin

Karma og endurholdgun

By Fréttir

Fyrirlestrar

Í tilefni af útkomu samnefndra bóka verður Eldey Huld Jónsdóttir með fyrirlestrana Karmalögmálið, lögmál orsaka og afleiðinga fimmtudaginn 4. apríl kl. 19:30 og Lögmál endurholdgunar, þróun mannsins fimmtudaginn 18. apríl kl. 19:30 í Nýju Avalon miðstöðinni. Verð kr. 700.- á hvort kvöld.

Lesa Meira

Eiginleikar hjartans – Námskeið með Jan Ruben og Martin Binderup

By Fréttir

Jan Ruben og Martin Binderup frá Danmörku verða með námskeið laugardaginn 3. nóvember kl. 10 – 16:30 þar sem þeir kynna "andlegt verkefni" sem miðar að því að þroska hjartaeiginleika, svo þátttakendur geti lifað í meiri sátt við sál sína og anda. Markmiðið er að kenna þátttakendum að hlusta á sitt innra andlega hjarta; að hlusta á hina innri þögn og finna hjartaeiginleika, sem getur virkað sem lyftistöng í lífi þeirra. Kenning þeirra er sú að sérhver manneskja hefur einn eða fleiri hjartaeiginleika sem eru einstakir og séu þeir virkjaðir í daglega lífinu gerir það viðkomandi kraftmeiri, jákvæðari og meira skapandi. Aðgangseyrir kr. 6.000.

Lesa Meira

Konsert með Asher Quinn (Asha) – Avalon kynnir

By Fréttir

The Spirit og 2012 Concert verður í Salnum Kópavogi 1. september 2012 kl. 20:00. Asher Quinn (Asha) er þekktur söngvari, lagasmiður og hljóðfæraleikari sem hefur selt tæplega miljón plötur um allan heim frá því hann gaf út sína fyrstu plötu Open Secret árið 1987. Nýjasta plata hans O Great Spirit er tilnefnd til Grammy verðlauna. Tónlist hans bræðir saman hina ýmsu stefnur og tónsmíðar hans eru blíðar, upplyftandi, fullar af von, þrá og dulhyggju. 

Miðasala er á midi.is og salurinn.is

Lesa Meira

Wesakskóli að Sólheimum í Grímsnesi

By Fréttir

Helgina 4.- 6. maí verða haldnir Wesakdagar að Sólheimum í Grímsnesi. Dagarnir eru haldnir í tilefni af Wesakhátíðinni sem fram fer á innri sviðum ár hvert á fullu tungi í nautsmerki. Þessi hátið er ein af þremur stórhátíðum sem haldnar eru á innri sviðum á fullu tungli á vormánuðum, þ.e. um páska, á Wesak og svo á fullu tungli í tvíburamerki en þá fer Asalahátíðin fram.

Lesa Meira

Iceland Renewal Journey – Dagskrá með Ann Phillis

By Fréttir

Ann Phillis heilari, sjáandi og fyrirlesari verður með eftirfarandi dagskrá í miðstöðinni auk þess að standa fyrir hópferð til Akureyrar og ýmissa náttúruperla. Ann býður einnig upp á einkatíma þar sem hún veitir Heart InSight lestur. 

Renewing your Heart Journey laugard. 31. mars kl. 14- 17 verð kr. 3.000.

Clear Blocks and Revitalise with Hope sunnud. 1. apríl kl. 9:30 – 11:30 Verð kr. 2.000.

Transform with Forgivenss and Grace þriðjud. 3. apríl kl. 9:30 – 12:00. Verð kr. 2.500.

Renewal with Heart laugard. 7. apríl kl. 14:30 – 17. Verð 2.500. Nánari upplýsingar má fá í Nýju Avalon miðstöðinni.

Lesa Meira

Mandala sound-resonance – Námskeið með Lars Christian Schmith

By Fréttir

Lars Christian Schmith frá Danmörku verður með námskeiðið Mandala sound-resonance helgina 10.-11. september kl. 10-17. Að auki mun hann kynna námskeiðið föstudaginn 9. september kl. 19. Í auglýsingu frá Lars segir:

Mandalas – sacred circles for centering and healing. 

Intensive two days workshop The sacred art of mandala drawing. Participants are invited to journey within guided to explore the Sacred Alchemy of the Heart through, inquiry, intentionality, scales of radiant light, colours, vibrating sounds and burning rituals etc. All exercises are based on inner guidance and the instructions given through Dr. Judith Rajita Cornell Ph.d.

Mandala drawing and sound resonance are tools to heal emotionally and spiritually. 

Prize: 120 evrur

Lifandi orð

By Fréttir

Þrír nýir bæklingar úr ritröðinni "Lifandi orði" eftir Ananda Tara Shan eru komnir út. Það er eru bæklingarnir Öld Maitreya í gegnum hina guðlegu Móður, Vegur Hjartans og Páskar. 

Heart for change – 2012 – Before and After

By Fréttir

Brenton Phillis frá Ástralíu er gestur miðstöðvarinnar í júní. Brenton hefur áður komið með eiginkonu sinni Ann Phillis og haldið hér námskeið en þau hjónin hafa haldið fjölda fyrirlestra og námskeiða hjá Guðspekisamtökunum í Ástralíu og á Norðurlöndunum. Brenton verður með eftirfarandi dagskrá:

Miðvikudaginn 1. júní fyrirlestur kl. 20 Heart for Change – 2012, Before and After

Fimmtudaginn 2. júní kl. 14-17 The Heart Path – Love is all there is

Laugardaginn 4. júní kl. 10-13 Renewal – Personal and Global

Fimmtudaginn 9. júní kl. 20 Heart Shaktipat – a giving of heart energy.

Skráning er í miðstöðinni.

Þjónusta í Reykjanesbæ

By Fréttir

Dagskrá vorannar hófst með heilunarþjónustu í Reykjanesbæ 23. janúar. Þemað var friður, heilun, fyrirgefning og ný von. Fyrirhugað er að halda fleiri heilunarþjónustur úti á landi á árinu og verður sú næsta að Sólheimum í Grímsnesi sunnudaginn 15. maí.