Skip to main content

Helgina 4.- 6. maí verða haldnir Wesakdagar að Sólheimum í Grímsnesi. Dagarnir eru haldnir í tilefni af Wesakhátíðinni sem fram fer á innri sviðum ár hvert á fullu tungi í nautsmerki. Þessi hátið er ein af þremur stórhátíðum sem haldnar eru á innri sviðum á fullu tungli á vormánuðum, þ.e. um páska, á Wesak og svo á fullu tungli í tvíburamerki en þá fer Asalahátíðin fram.

Dagskráin að þessu sinni samanstendur af fyrirlestrunum: Yasodhara Búdda; Rétt mannleg samskipti; og Guð Móðirin og englaríkið. Þá verða hugleiðslur og heilunarþjónusta fer fram á sunnudagsmorgninum.

Að auki verða haldnir píanótónleikar í kirkjunni á laugardagskvöldið. Tónskáldið Benjamin de Murashkin mun flytja eigin verk á píanóið í kirkjunni og improvisera. Benjamin er ungt tónskáld sem hefur getið sér gott orð í Danmörku þar sem hann hefur nýlokið framhaldsnámi í tónsmíðum. Benjamin er sonur Anöndu Töru Shan stofnanda Guðspekisamtakanna.

Þátttöku þarf að tilkynna á newavalon@simnet.is og staðfesta fyrir 15. apríl. Sömuleiðis þarf að staðfesta gistingu fyrir þann tíma. Þátttökugjald er kr. 1.500 fyrir þá sem kaupa gistingu annars kr. 5.000.-

Gisting í Veghúsi í tveggja manna herbergi með baði er kr. 7.500 á manninn fyrir eina nótt. Einnig er hægt að fá gistingu í Brekkukoti. Einstaklingsherbergi án baðs er á kr. 6.500 nóttin og tveggja manna herbergi án baðs er á kr. 10.000.- nóttin.