Skip to main content

Gerast styrktaraðili

Nýja Avalon miðstöðin er rekin með frjálsum fjárframlögum. Miðstöðin er enn fremur rekin án hagnaðar og öll vinna þar er unnin í sjálfboðavinnu.
Með því að gerast Vinur í Hjartaflæði styrkir þú rekstur miðstöðvarinnar með greiðslu árgjalds sem er kr. 6.500 og greiðist í mars ár hvert.
Það að vera Vinur skuldbindur þig á engan annan hátt en að styrkja starf miðstöðvarinnar með fjárframlagi sem nemur ofangreindu árgjaldi.
Við hvetjum ykkur sem viljið styðja við og viðhalda starfsemi miðstöðvarinnar að gerast Vinir í Hjartaflæði, eða með öðrum hætti styðja við starf miðstöðvarinnar með fjárframlagi.
Á dagskrárliðum tekur kaffikrúsin okkar einnig við smærri fjárframlögum.
Þá má nefna að þau sem skrá sig í lífskoðunarfélagið Nýja Avalon miðstöðin hjá Þjóðskrá styrkja einnig starfsemi miðstöðvarinnar því ríkið greiðir sóknargjald viðkomandi til miðstöðvarinnar.

Óskir þú að gerast Vinur eða ef þér vantar frekari upplýsingar sendu póst á info@nyjaavalon.is